Kvikmyndaleikarinn Russell Crowe kom fram á tónleikum ásamt samstarfsfélaga sínum Alan Doyle í Norðurljósasal Hörpu síðdegis í dag. Tónleikarnir fengu frábærar viðtökur en þetta voru fyrstu tónleikar félaganna á Íslandi.
Crowe og Doyle koma síðan fram á öðrum þrennum tónleikum í kvöld. Þeir munu stíga á stokk í bakgarðinum hjá skemmtistaðnum Bar 11 klukkan 20:30 en X-977 og Bar 11 standa að baki þeim tónleikum. Síðan munu félagarnir spila á gistiheimilinu Kex Hostel klukkan 21:30 í kvöld.
Á Facebook-síðu Gamla Gauksins kemur einnig fram að staðurinn muni fagna árs afmæli enduropnunar í kvöld en Crowe og Doyle munu hita upp áður en Magni og félagar stíga á svið. Frítt er inn á tónleikana og þeir byrja stuttu eftir flugeldasýninguna klukkan 11.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013