Laugardaginn 18. ágúst kl. 13 opnar Valerie Boyce sýningu á landslagsmálverkum í Gallerí Fold. Sýningin er hluti af dagskrá Menningarnætur Reykjavíkur.
Franska listakonan Valerie Boyce stundaði nám við École Nationale Supérieure des Beaux Arts de Paris og School of Visual Arts í New York.
Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum í Frakklandi, Bandaríkjunum og Íslandi.
Valerie Boyce málar landslag og raðar upp tímapunktum í verkum sínum sem saman mynda ferli og frásögn af umhverfinu. Sjálf segir Valerie að landslagsmálverkið sé eins konar sjálfsmynd af listamanninum, náttúran sem birtist á striganum sé speglun á innri náttúru listamannsins. Málverkið nærist á ástríðu málarans og deyji þegar hún er ekki fyrir hendi.
Sýningin stendur til 2. september.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013