Upplifðu tónlistarlega standpínu

Hljómsveitin Urban Lumber kemur sér á kortið

„Við smullum bara saman. Þeir hringdu í mig og báðu mig að koma á æfingu með sér og ég smellpassaði inn í þetta hjá þeim. Það löbbuðu allir út með tónlistarlega standpínu eftir þessa fyrstu æfingu,“ segir Björg Ólöf Þráinsdóttir hlæjandi en hún er söngkona hljómsveitarinnar Urban Lumber.

Lag sveitarinnar, Tease you mind, hefur verið spilað töluvert á Rás 2 undanfarið og komst nýlega inn á vinsældarlistar stöðvarinnar.

Björg segir fleiri lög væntanleg frá sveitinni og stefna þau á að gefa út plötu á næsta ári. „Við eigum fjögur fullkláruð lög og nokkur sem eru ekki alveg tilbúin.“

Hljómsveitin hefur spilað saman síðan í mars. „Við komum öll úr ólíkum áttum en náum mjög vel saman.“

Þau hafa spilað á nokkrum stöðum og stefna á að spila enn meira. „Það er allt í vinnslu hjá okkur, við erum að koma okkur á kortið, en við höfum spilað á Dillon og Hressó meðal annars,“ segir Björg. Tónlistinni lýsir hún sem svipaðri og þekkist hjá hljómsveitinni Portishead. „Það hljómar svipað því að einhverju leyti. Annars erum við ekkert búin að setja okkur í neinn kassa hvað það varðar. Það er svo margt að gerast og þetta er alltaf að mótast hjá okkur. Við erum bara á fullu að semja og ætlum að reyna að spila sem mest,“ segir Björg að lokum. Hægt er að kynnast hljómsveitinni betur á Facebook-síðu undir nafni sveitarinnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.