Vertigo valin besta mynd allra tíma

Ritstjóri segir kvikmyndasmekk gagnrýnenda vera að breytast

Vertigo, í leikstjórn Alfreds Hitchcock, hefur verið valin besta kvikmynd allra tíma. Tæplega níu hundruð gagnrýnendur og aðrir aðilar úr kvikmyndageiranum tóku þátt í könnun til að skera úr um hver væri besta mynd allra tíma. Lengi vel hefur kvikmynd Orson Welles, Citizen Kane, verið talin sú besta en í þessari könnun tímarits bresku kvikmyndastofnunarinnar, Sight & Sound, var Vertigo valin sú besta.

Nick James, ritstjóri Sight & Sound, segir könnunina sýna fram á breytingar á kvikmyndasmekk. „Nú virðist fókusinn ekki vera á listrænar kvikmyndir og þær sem nýta sér alla möguleika kvikmyndagerðarinnar, heldur þær myndir sem hafa persónulega þýðingu hjá rýnum,“ segir James.

Aðrar myndir sem náðu inn á topp tíu listann voru meðal annars Tokyo Story, eftir Yasujiro Ozu, sem varð í þriðja sæti og 2001: A Space Odyssey, eftir Stanley Kubrick, sem hafnaði í sjötta sæti.

Á listanum eru einnig þrjár þöglar myndir. Tvær þeirra, Man With A Movie Camera, eftir Dziga Vertov, og The Passion Of Joan Of Arc, eftir Carl Theodor Dreyer, náðu inn á listann í fyrsta skiptið.

Vertigo kom út árið 1958 en hún fjallar um einkaspæjara sem þjáist af lofthræðslu. Hún komst fyrst inn á lista Sight & Sound árið 1982, var þá í sjöunda sæti, en það var tveimur árum eftir að Hitchcock lést.

Í annarri könnun, þar sem 358 leikstjórar voru spurðir álits, varð Tokyo Story í efsta sæti en Citizen Kane í öðru. Á meðal þeirra sem tóku þátt í þeirri könnun voru Martin Scorsese, Quentin Tarantino og Francis Ford Coppola.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.