Tími nornarinnar, sjónvarpsþáttaröð Friðriks Þórs Friðrikssonar eftir samnefndri skáldsögu Árna Þórarinssonar, hefur verið sýnd í sænska ríkissjónvarpinu, SVT 1, á sunnudagskvöldum nú í júlí.
Häxans tid, eins og hún heitir á sænsku, virðist hafa farið vel í Svía, því áhorf var gott samkvæmt mælingum og þættirnir fóru í efsta sæti á Play TV, vefsjónvarps„voddi“ sænska sjónvarpsins.
Í blaðinu Helsingborg Dagblad birtist umsögn undir fyrirsögninni Ísköld morð á Íslandi. Þar vekur gagnrýnandi athygli á því að þættirnir beri allt annars konar stemningu en bækur Arnaldar Indriðasonar og fannfergið í þeim eigi betur við á slæmu sænsku sumri en þeir sem gerast í sól og blíðu. „Smábæjarkomplexinn, músíkin og mystíkin í Häxans tid minnir mig ósjálfrátt á Twin Peaks ... og serían virkar framúrskarandi þegar maður hefur horft á hundrað þáttum of mikið af Midsummer Murders (Barnaby lögregluforingja).“
Samkvæmt mælingum Capacent Gallups var Tími nornarinnar vinsælasta leikna þáttaröðin í íslensku sjónvarpi í fyrra. Aðalhlutverkið, Einar blaðamann, lék Hjálmar Hjálmarsson.
Söguþráðurinn er á þá leið að Einar, blaðamaður Síðdegisblaðsins, hefur yfirgefið sínar fornu veiðilendur, löggufréttir af höfuðborgarsvæðinu, og er fluttur til Akureyrar því auka skal útbreiðslu blaðsins á uppgangstímum á Norðurlandi.
Fyrsta verk Einars fyrir norðan er að skrifa um konu sem deyr af slysförum í flúðasiglingu og rannsókn á hvarfi ungs leikara sem seinna finnst myrtur. Atburðarásin þróast í margslungna fléttu þar sem hver gátan rekur aðra. Bókin, Tími nornarinnar, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2005.

Hemmi Gunn fallinn frá