Hipsterinn búinn að vera

„Ég held að þeir sem skilgreina sig sem hipster, séu að reyna aðeins of mikið“

„Ég held alltaf að þegar tískufyrirbæri er búið að fá nafn, þá séu endalokin að nálgast. Flest svona tískufyrirbæri verða til vegna einhvers aðskilnaðar frá hópnum. Um leið og hópurinn hefur tileinkað sér tískuna þá er hún úr tísku,“ segir Stefán Svan, verslunarstjóri hjá Sævari Karli, spurður hvort að tískufyrirbrigðis „hipster“ sé búið að vera. Í helgarblaði DV er ítarleg umfjöllun um hina svokölluðu Hipstera og segja flestir álitsgjafar DV þetta tískufyrirbrigði búið að vera.

„Hann hlýtur eiginlega alltaf að vera búinn að vera. Þeir úreldast á hverjum degi enda elta þeir tískuna og það sem er í tísku fer úr tísku,“ segir Gunnar Þorvaldsson, grafískur hönnuður, meðal annars um fyrirbærið og bætir við. „Ég held að þeir sem skilgreina sig sem hipster, séu að reyna aðeins of mikið. Þeir sem eru mest áberandi í dag myndu líklega aldrei gera það nema að vera að gera að gamni sínu.“

Stefán Svan segir tímabært að menn hætti að ganga í þröngum leggings-buxum og menn eigi að forðast að kaupa notaða skó:

„Ég er búinn að segja það oftar en einu sinni að það er mjög tímabært að fólk hætti að ganga í þessum leggings-gallabuxum. Þær klæða afar fáa, þá er alveg dottið úr tísku að nota leggings eins og buxur. Ég verð mjög sáttur þegar ég hætti að sjá konur klæddar í slíkar buxur. Þá ætti enginn að kaupa sér notaða skó nema hann komist ekki upp með annað. Hins vegar verða klassísku Ray Ban-gleraugun alltaf í tísku,“ segir Stefán Svan.

Nánar um málið í helgarblaði DV


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.