Tom Cruise lang launahæsti leikarinn

Þénaði 9,4 milljarða króna

Íslandsvinurinn Tom Cruise var hæst launaði leikarinn frá maí í fyrra til maí í ár. Þénaði hann um 75 milljónir dollara samkvæmt lista bandaríska tímaritsins, sem gera um 9,5 milljarðar íslenskra króna, Forbes en næstir á eftir honum eru Leonardo DiCaprio og Adam Sandler með 37 milljónir dala hvor. Dwayne Johnson þénaði 36 milljónir dala og Ben Stiller 33 milljónir dala.

Ástæðan fyrir þessari háu upphæð Cruise er kvikmyndin Mission: Impossible – Ghost Protocol sem rakaði inn 700 milljónum dala í miðasölu og fær Cruise hluta af gróðanum. Hann fékk einnig væna summu fyrir leik sinn í myndinni Oblivion sem var tekin upp að hluta hér á landi en myndin er væntanleg í kvikmyndahús í apríl á næsta ári.

DiCaprio hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár. Hann hefur ákveðið að fara sömu leið og leikarinn Brad Pitt með því að taka á sig umtalsverða launalækkun fyrir leik sinn í kvikmynd leikstjórans Quentin Tarantino Django Unchained. Ef myndinni vegnar vel í miðasölu þá mun launagreiðsla DiCaprio hækka umtalsvert.

Athygli vekur að Adam Sandler er á meðal hæst launuðu leikaranna en mynd hans Jack and Jill fékk afar slæma dóma á meðal áhorfenda og hlaut tíu Razzie verðlaun.

Myndinni gekk þó vel í miðasölu og rakaði þar inn 150 milljónir dollara en kostaði 80 milljónir í framleiðslu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.