Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
14:18 › 31. júlí 2012
Hljómsveitin of Monsters and Men eru tilnefnd til MTV verðlaunanna, en tilkynning um þetta kom í dag. Er hljómsveitin tilnefnd fyrir myndbandið við lagið Little talks í flokknum „Best art direction“ eða besta listræna stjórnunin.
Verðlaunin verða veitt í september næstkomandi í Los Angeles.
Hljómsveitin hefur verið að gera það gott í Bandaríkjunum og Evrópu og hefur flogið upp vinsældarlista og hefur lagið Little talks vakið sérstaka athygli.
Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir ofan.
Í sama flokki er Katy Perry tilnefnd fyrir myndbandið Wide Awake, Drake og Rihanna fyrir myndbandið við lagið Take Care, Lana Del Rey fyrir lagið Born to Die og Regina Spektor fyrir myndbandið All the Rowboats

Hemmi Gunn fallinn frá