Aðdáendur njósnarans James Bond geta gætt sér á þessari nýjustu stiklu úr myndinni Skyfall sem væntanleg er í kvikmyndahús í október. Þetta er í þriðja skiptið sem Daniel Craig leikur Bond en í stiklunni sést hann sviðsetja sinn eigin dauðdaga en njósnarinn hefur áður þurft að grípa til þess ráðs. Það var í myndinni You Only Live Twice þar sem Bond var leikinn af skoska kyntröllinu Sean Connery.
Áður hafa komið út stuttar stiklur af þessari nýjustu mynd um ævintýri breska kvennagullsins en nú fá aðdáendur hans loksins að sjá illmennið Raoul Silva, sem leikinn er af Javier Bardem.
Þá markar þessi mynd endurkomu uppfinningamannsins Q en hann er leikinn af Ben Whishaw og er mun yngri en Bond. Njósnarinn fær Walter PPK-skammbyssu frá Q sem segir Bond að hún virki aðeins ef njósnarinn sjálfur heldur á henni.
Þetta er tuttugasta og þriðja myndin um Bond en fimmtíu ár eru liðin síðan fyrsta myndin kom út. Óskarverðlaunahafinn Sam Mendes leikstýrir Skyfall.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013