Sýnishorn: Mögnuð stórmynd í vændum

Heimspekileg blanda úr öllum áttum

Sýnishorn úr stórmyndinni Cloud Atlas birtist á netinu í gær og er það vægast sagt magnað sjónarspil. Myndin, sem byggð er á bókinni eftir David Mitchell, mun líklega hafa eitthvað fyrir alla en sagan er mögnuð blanda af vísindaskáldskap, hasar, ævintýri og rómantík. Þessu er síðan öllu blandað saman við heimspekilegar vangaveltur á stórum skala.

Myndin hefur þrjá leikstjóra; Andy Wachowski og Lana Wachowski (The Matrix) og Tom Tykwer (Run Lola Run). Í viðtali sem birtist á netinu í gær segja leikstjórarnir að upprunalega hafi verið strembið að reyna að fá fjármagn fyrir myndina þar sem sagan þótti of flókin og þar sem það þótti of undarlegt að vera með þrjá leikstjóra.

Sem betur héldu þau þó áfram með verkefnið og af sýnishorninu að dæma verður biðin ærandi. Cloud Atlas verður frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í september. Meðal leikara eru Tom Hanks, Halle Berry, Jim Broadbent, James D‘Arcy, Hugh Grant og Susan Sarandon.

Leikstjórarnir þrír ræða myndina:


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.