Rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir er einn sjö bloggara á alþjóðlegu bókmenntabloggi sem kallast Murder Is Everywhere, eða Morð er alls staðar. Um er að ræða sjö þekkta glæpasagnahöfunda sem blogga frá öllum heimshornum. Bloggið var fyrst stofnað árið 2009 og var Yrsa þá beðin um að vera með. „Ég er búin að vera ægilega glöð yfir því hvað hefur borið lítið á síðunni hér á landi. Hún á samt dyggan hóp fylgjenda um allan heim,“ segir Yrsa í samtali við DV. Í nýjustu bloggfærslu sinni skrifar hún um ólystugar lýsingar á gæðum vína og um íslenskt rok.
Gerist ekki nógu mikið
Höfundarnir búa í Suður-Ameríku, Frakklandi, Asíu, Afríku, Englandi, Íslandi og Grikklandi. „Það gerist ekki nógu mikið hér til að maður geti verið með endalausar rosalegar fréttir um Ísland, þannig að mín blogg eru oft meira grín. Hjá til dæmis Suður-Ameríku er aftur á móti fjallað mikið um söguna þar og baráttuna milli innfæddra og nýlenduherra. Hver og einn tekur þetta eins og hann vill,“ segir Yrsa, sem leggur áherslu á að síðan sé ekki notuð til að auglýsa bækur höfundanna.
Hrikalegt að halda úti bloggi
Hver höfundur bloggar einn dag í viku. „Það er hrikalegt mál að halda úti svona bloggi þannig að mér finnst alveg meira en nóg að hafa þetta einu sinni í viku. Þeir sem skrifa frá Suður-Afríku, Michael Sears og Stanley Trollip, skrifa bækurnar sínar saman og skiptast á. Ég öfunda þá rosalega því þeir fá alltaf frí aðra hvora viku,“ segir hún og hlær.
Hér má lesa blogg Yrsu og félaga: Murder is Everywhere

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum