Superman orðinn sjóari

Sækir sjóinn í nýjustu myndinni

Þeir sem sjá þriðju myndina um Leðurblökumanninn, The Dark Knight Rises, fá einnig forsmekkinn af nýjustu myndinni um ofurhetjuna Superman, Man of Steel. Þar virðist hetjan, sem gengur undir nafninu Clark Kent í daglegu lífi, stunda sjómennskuna af miklum móð í stiklu, sem sýnd er á undan Dark Knight Rises, sem er gert að auka eftirvæntingu fyrir myndinni sem frumsýnd verður á næsta ári.

Þeir sem þekkja til sögu Supermans vita að hann starfar venjulega sem blaðamaður til að eiga salt í grautinn. Hefur hann jafnan náð að blekkja félaga sína á ritstjórninni með hlédrægni framkomu og svörtum gleraugum.

Það eru tvö sýnishorn í umferð en í öðru þeirra fáum við að heyra í rödd föður Supermans, sem heitir réttu nafni Kal-El, Jor-El, sem leikinn er af Íslandsvininum Russell Crowe, og í hinu heyrum við í fósturföður hans, Jonathan Kent, sem leikinn er af Kevin Costner.

Superman er leikinn af Henry Cavill en Man of Steel er leikstýrð af Zack Snyder, þeim sama og færði okkur 300 og Watchmen. Christopher Nolan, leikstjóri og handritshöfundur nýjustu Batman-myndanna, kemur einnig að vinnslunni með því að vinna að handritinu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.