Leið eins og útlendingi í eigin landi

Forlagið hefur gefið út bókina The little book of the Icelanders, eftir Öldu Sigmundsdóttur. Bókin hefur að geyma fimmtíu sögur um háttalag og sérkenni Íslendinga, óskrifaðar reglur í samskiptum þeirra og hefðir sem hafa skapast í kringum ýmis tilefni.

Berðu fram V og W eins þegar þú talar ensku? Gefur þú stefnuljós? Setur þú barnið út á svalir að sofa? Svör við þessum spurningum gætu gefið til kynna íslenskt þjóðerni.

„Mér leið svolítið eins og útlendingi í eigin landi þegar ég kom heim eftir að hafa búið erlendis mestan part æskuáranna og hóf að rita hjá mér ýmis sérkenni Íslendinga, bæði sem mér fundust sérkennileg og þau sem mér fundust skemmtileg og falleg,“ segir Alda frá um tilurð bókarinnar.

„Ég reyni að útskýra margt sem kemur útlendingum á óvart. Næturlífið, smábörnin sem sofa úti. Íslendingar eru hvatvísastir allra Norðurlandaþjóða og oft eru þeir sagðir Suður-Evrópubúar, Norður-Evrópu,“ segir hún og hlær. „Umferðin á Íslandi finnst mörgum útlendingum svipa til þeirrar í Suður-Evrópu, engin stefnuljós og illa lagt í stæði. Við segjum líka: Þetta reddast, í tíma og ótíma“

Spyrja ekki

Einna merkilegast finnst henni hve mörgum Íslendingum gengur illa að taka þátt í samræðum. „Án þess að vilja vera neikvæð, þá eiga þeir í stökustu vandræðum með halda aftur af sjálfum sér. Þeir hafa mikla þörf fyrir að tala um sjálfa sig. Samræðulistin er þannig að þú hlustar og spyrð, og svarar, til skiptis. Íslendingarnir eru meira fyrir að vera bara spurðir, hlusta ekkert og spyrja ekki á móti. Ef einhver klárar að svara spurningu um sig, þá er hann ekkert endilega að segja við viðmælandan, "en þú?" eða eitthvað slíkt, heldur kemur bara ÞÖGN. Svo halda samræðurnar ekkert áfram nema það komi önnur spurning, eða ef viðkomandi finnst þögnin óþægileg, þá heldur hann áfram með sinn monologue, um sig. Það er

eins og hinum viðmælandanum sé ekki veitt nein athygli. Veit ekki hvort Íslendingum finnst dónalegt eða óþægilegt að spyrja um aðra, hvort þeir telja sig vera að fara inn á eitthvað svæði sem er of náið eða eitthvað, allavega er þetta mjög áberandi og allt annað en ég hef kynnst erlendis.“

Alda hefur nú búið á Íslandi í nærri því tvo áratugi. Hún er rithöfundur, blaðamaður, þýðandi og bloggari. Margir kannast við blogg hennar sem hún hélt úti um árabil. The Iceland Weather Report. Í dag lærir hún ensku og þjóðfræði í Háskóla Íslands, ásamt því að sinna ritstörfum og þýðingum. „Mig langaði að bæta þessu við mig og auðsjáanlega finnst mér þjóðfræðin spennandi fag.“

Sérkenni Íslendinga

Þeir eru...

Óstundvísir

Blóðheitir

Hvatvísir

Bjartsýnir

Vinnusamir

Framtakssamir

Umferðardólgar

Fjölskylduræknir

Sjálfumglaðir

Stoltir

Haldnir minnimáttarkennd

Heimakærir

Sjálfstæðir

Geta ekki borið fram W

Ginkeyptir

Hégómlegir

Partýglaðir

Hörundssárir (Þeir eru allir orðnir brjálaðir af því að lesa þennan lista!)


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.