„Kvikmyndagerð sem á sér ekki fordæmi“

Dark Knight Rises fær glimrandi dóma

Þriðja mynd leikstjórans Christophers Nolans um Batman fær glimrandi dóma frá breska tímaritinu Empire. Dark Knight Rises gerist átta árum eftir atburðina í annarri myndinni. Grímuklæddi brjálæðingurinn Bane ógnar íbúum Gotham í þessari þriðju mynd og ákveður Bruce Wayne að leðurblökumaðurinn verði að snúa aftur.

„Þetta er kvikmyndagerð sem á sér ekki fordæmi,“ segir í dómi Empire. „Þriðja myndin kemur kannski ekki á óvart líkt og fyrsta myndin né býr yfir jafn mikilli óreiðu og önnur myndin, en hún bætir það upp með miklum tilfinningum. Þetta er sú grafskrift sem hetjan á skilið,“ segir í dómi Empire.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.