Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju

Þann 12.júní verður tónleikaröðinni " Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju " hleypt af stokkunum þ. 12. júní n.k.

Þetta er í sjötta sinn sem boðið er upp á tónleika um hásumarið í kirkjunni fallegu og kunna margir að meta þennan klassíska fegurðarauka í þjóðgarðinum.

Á fyrstu tónleikunum, þ. 12. júní mun Gunnhildur Daðadóttir, fiðluleikari, bjóða upp á einleiksdagskrá með þjóðlagakenndu ívafi.

Viku seinna, þ. 19. júní, kemur sólóflautuleikari Sinfóníunnar, Hallfríður Ólafsdóttir, og töfrar fram tóna úr þverflautuheimum.

26. júní gefur að heyra þau Sigurgeir Agnarsson, sellóleikara, og Berglindi Stefánsdóttur, flautuleikara í fjölbreyttri og spennandi dagskrá.

Þremenningarnir í Tríói Vei, þau Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran, Einar Jóhannesson, klarínetta og Valgerður Andrésdóttir, harmóníum að þessu sinni, munu kveðast á við fossbúann í Öxarárfossi þ. 3. júlí.

10. júlí má búast við fornum tónum úr börkum Voces Thules manna, en síðustu tónleikarnir verða þ. 17. júlí þegar Arnaldur Arnarson mundar gítarinn sinn og galdrar fram seiðandi stemningar frá Spáni og víðar.

Tónleikarnir hefjast kl 20.00 og standa í u.þ.b. 50 mínútur. Enginn aðgangseyrir er að þeim en frjáls framlög í tónlistarsjóð kirkjunnar að loknum tónleikum eru vel þegin.

Tónleikagestir eru beðnir um að leggja bílum sínum við Flosagjá og ganga spottann heim að kirkju.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.