„Það var gott veður og mikill fjöldi fólks lagði leið sína á hátíðina,“ segir Tinna Ottesen, einn aðstandenda Skjaldborgarhátíðarinnar sem haldin var á Patreksfirði yfir hvítasunnuhelgina. Tinna segir hátíðina hafa þroskast með hverju árinu, nú þegar hún hafi verið haldin í sjötta sinn hafi íbúar á nærliggjandi svæðum tekið virkan þátt. „Það er virkilega gaman að sjá hvernig hátíðin hefur þróast og hversu mikil þekking hefur orðið til á heimildamyndum. Íbúar hér í nágrenninu eru afar áhugasamir,“ segir hún.
Mikið af kvikmyndagerðarfólki lagði leið sína á hátíðina að vanda og skemmti sér saman í blíðu sólskini. Heimildamyndir voru sýndar frá föstudegi til sunnudags, boðið var upp á plokkfisk, haldin sjávarréttaveisla og sveitaball. Þá fór fram hin árlega limbókeppni sem er orðin fastur liður hátíðarinnar.
Einn gesta var ljósmyndarinn Friðrik Örn Hjaltested, sem myndaði stemninguna á hátíðinni og var reyndar sjálfur í aðalhlutverki í mynd vina sinna, Hafsteins Gunnars Sigurðssonar og Huldars Breiðfjörð, Filmu.
Í myndinni er Friðrik Örn í aðalhlutverki ásamt flækingskettinum Filmu. Kvikmyndagerðarmennirnir fylgdu honum og kettinum eftir í ferð þeirra eftir suðurströnd Íslands en Friðrik ætlaði sér að taka mynd af vitanum í Hrolllaugseyjum. „Þessi mynd kom mér fyllilega á óvart,“ segir Friðrik Örn sem var kampakátur með uppátæki vina sinna.
Mynd hátíðarinnar var valin af gestum, Hreint hjarta eftir Grím Hákonarson. Myndin fjallar um séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson sem hefur verið prestur á Selfossi og nágrenni í 20 ár.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013