„Það hefur enginn hótað mér“

Bara fengið góð viðbrögð við þjóðhátíðarlaginu- Hlustaðu hér!

„Mér persónulega líður mjög vel. Þetta er náttúrulega bara svona spennufall hálfgert. Það eru margir sem bíða eftir þessu,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra og höfundur lagsins Þar sem hjartað slær, sem er þjóðhátíðarlagið í ár.

Þar sem hjartað slær var frumflutt á hádegi á þriðjudaginn og síðdegis sama dag þegar DV náði tali af Halldóri hafði hann bara fengið jákvæð viðbrögð við laginu. „Það hefur enginn hótað mér, sko,“ segir hann hlæjandi. „Það er náttúrulega ekki hægt að ætlast til þess að allir fíli það sem maður er að gera en við erum bara búin að fá jákvæð viðbrögð og allir voða ánægðir með þetta.“

Halldór getur ekki beðið eftir því að fá að flytja lagið í Herjólfsdalnum á sjálfri Þjóðhátíð. „Það verður verður skemmtilegt. Það er mómentið og ástæðan fyrir þessu öllu saman.“ Fjallabræður hafa spilað á síðustu tveimur Þjóðhátíðum og Halldór er því vel kunnur tilfinningunni sem fylgir því að standa á sviðinu í dalnum með brekkuna fyrir framan sig, troðfulla af fólki. Þetta er þó í fyrsta skipti sem kórinn kemur að sjálfu þjóðhátíðarlaginu. „Það er búinn að vera svona stígandi í þessu,“ segir hann glettinn að lokum.

Textann við lagið samdi Magnús Þór Sigmundsson, um flutninginn sjá Fjallabræður ásamt Lúðrasveit Vestmannaeyja og forsöngvari hópsins er Sverrir Bergmann.

Hægt er að hlusta á lagið hér:


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.