Mamma þín er að lesa þessar bækur, kannski amma þín líka. Um beinstífa karlmannslimi og sadómasókískt kynlíf.
Markaðstöfrar Harry Potter duga skammt þegar kemur að klámi markaðssettu fyrir „þroskaðar“ konur. Bókaröðin Fifty Shades of Grey eftir E.L James selst eins og heitar lummur í Bandaríkjunum. Nánar tiltekið hafa selst 10 milljónir eintaka um heim allan og höfundarrétturinn seldur til 37 landa.
Fifty Shades of Grey er nokkurs konar endursögn, spunasaga, á annarri frægri og vinsælli bókaröð, Twilight eftir Stephanie Meyer.
Nöfnum sögupersóna og sögusviði hefur verið breytt. Engar vampírur og í stað melódramans kemur sjóðheitt kynlíf.
Aðalsöguhetjan er ung kona með brotna sjálfsmynd sem á í sambandi við sadómasókískan milljarðamæring. Anastasia Steele og Christian Grey stunda kynlíf í „herbergi sársaukans“.
Nánar í miðvikudagsblaði DV, en áskrifendur geta lesið greinina alla með að velja meira hér fyrir neðan


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013