Þann þriðja júlí næstkomandi mun þáttaröðin Leiðarljós ekki lengur vera sýnd í Ríkissjónvarpinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem RÚV sendi frá sér rétt í þessu. Þar kemur fram að dreifingaraðilar þáttanna sjá sér ekki hag í að endurnýja samninga við RÚV auk þess sem þeir hafa ákveðið að stöðva sölu þeirra í bili vegna óvissu í Bandaríkjunum sem tengist réttindum á tónlistinni, sem er notuð í þáttunum.
Í tilkynningunni segir einnig: „Leiðarljós hefur verið á dagskrá RÚV síðan árið 1995 og hafa verið sýndir rúmlega 4200 þættir allt í allt hérlendis. Þessi þáttaröð hefur átt tryggan hóp áhorfenda, sem án efa mun sakna þáttanna.
En til þess að gefa þeim vísbendingu um örlög fólkins í Leiðarljósi verður hægt að nálgast upplýsingar um afdrif þeirra á slóðinni www.ruv/leidarljos, í þeim þáttum sem ekki náðust samningar um. Úrdrátturinn liggur fyrir á netinu frá og með n.k þriðjudegi.
Leiðarljós er sú leikna þáttaröð sem hefur verið sýnd lengst í sjónvarpi í heiminum eða í 57 ár, en að undanförnu hefur áhorf farið dvínandi og er framleiðslunni hætt.
Til þess að bæta aðdáendum Leiðarljóss upp missinn mun RÚV hefja sýningar á ný á Herstöðvarlífi (Army Wives) kl. 16.35 á sama tíma og Leiðarljós var sýnt, frá mánudegi til fimmtudags. Ný sápuópera verður síðan tekin til sýningar á haustmánuðum.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013