„Þetta var svolítið gaman og svo bara seinna um daginn þá rauk platan upp í fjórða sæti yfir mest seldu plötur í Þýskalandi. Þannig að þetta skilaði sér rosa vel og það voru greinilega margir að horfa,“ segir Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Of Monsters and Men. Þann 18. júní síðastliðinn fékk hljómsveitin það frábæra tækifæri að fá að spila í EM-stofu þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ZDF fyrir leik Spánar og Króatíu. En þátturinn var sendur út í beinni útsendingu frá „The beach of Usedom“ við Eystrasalt.
Um er að ræða glæsilegan tökustað sem staðsettur er í fjörborðinu á hvítri sandströndinni. Sviði og stórum sjónvarpsskjá hefur verið komið fyrir úti í sjó en áhorfendur sitja í fjörunni og fylgjast með bæði knattspyrnuleikjum og skemmtiatriðum.
„Þetta þykir ótrúlega gott tækifæri og við náttúrulega gripum þetta strax og vorum meira en til í að fljúga þarna út og spila. Þetta var ótrúlega flott dæmi,“ segir Nanna en tilboðið barst þeim í gegnum útgáfufyrirtæki hljómsveitarinnar. Þau flugu sérstaklega út til Þýskalands til að koma fram í þættinum og fluttu lagið Little talks við mikinn fögnuð áhorfenda. Eins og sést glögglega á upptöku úr þættinum kunna áhorfendur vel að meta tónlistina, margir syngja með og dilla sér í sætunum.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013