Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
15:00 › 22. júní 2012
Í sumar verða haldnir fjölmargir tónleikar þar sem íslensk sönglög verða flutt og kynnt. Tónleikaröðin var líka á dagskrá s.l. sumar og kemur fjöldi söngvara og píanóleikara þar fram. Listrænn stjórnandi er Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari.
Í dag og næstu daga syngja Fjóla Kristín Nikulásdóttir sópran og Nathalía Druzin Halldórsdóttir mezzosópran við undirleik Ástríðar Öldu Sigurðardóttur píanóleikara. Þær flytja margar af perlum íslenskra einsöngslaga auk þess sem lögin eru kynnt á ensku til að auðvelda erlendum gestum að njóta tónleikanna.
Fyrstu tónleikar þeirra eru í dag, föstudag kl. 17 og svo aftur á laugardag og sunnudag á sama tíma. Miða er hægt að kaupa í miðasölu Hörpu.

Hemmi Gunn fallinn frá