Tónlist undir jökli

Mixmaster Morris mætir á Extreme Chill Festival

Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival 2012 – Undir Jökli verður haldin daganna 29. júní til 1. júlí næstkomandi á Hellissandi. Þetta er í þriðja skipti sem hátíðin er haldin, en hún á rætur sínar að rekja til ársins 2008 þegar hljómsveitin Stereo Hypnosis dvaldi á Hellisandi við upptökur á breiðskífunni Hypnogogia. Hljómsveitarmeðlimarnir, Pan og Óskar Thorarensen, voru það hrifnir af staðnum að þeir héldu árið 2009 útgáfutónleika breiðskífunnar.

Í fréttatilkynningu frá Pan, kemur fram að meðal erlendra gesta hátíðarinnar í ár sé Mixmaster Morris (Morris Gould) frá Bretlandi. Hinn 47 ára gamli raftónlistarmaður hefur komið víða við á sínu ferli. Ungur á árum ferðaðist hann með sem skífuþeytir með hljómsveitinni The Shamen í hartnær tvö ár, en hljómsveit þessi ættu margir eldri áhugamenn um raftónlist að þekkja. Hann hefur þrisvar sinnum hlotið nafnbótina „Sveimplötusnúður ársins“ á Ibiza plötusnúðaverðlaununum, nú síðast árið 2010. Hann ferðaðist með hinni stórgóðu sveit Coldcut árið 2007 og hefur í raun verið hálfgerður Zelig persónu í gegnum raftónlistarsögu vestrænna þjóða síðustu 25 ár.

Fyrsta útgáfan hans var undir dulnefninu The Irresistible Force og kallaðist stuttskífan I Want To. Þrátt fyrir góða móttökur á henni, má segja að frægðarsól hans hafi risið við útgáfu á breiðskífunni Flying High, sem kom út árið 1992 á hinni goðsagnakenndu útgáfu Rising High Records. Næsta breiðskífa hans nefndist Global Chillage og var gefin út af Astralwerks. Þriðja breiðskífa hans, og líklega sú þekktasta meðal yngri kynslóðarinnar, er It’s Tomorrow Already, sem kom út á vegum Ninja Tune. Fæðing síðustu breiðskífunnar var löng og erfið, en ýmis lagaleg vandamál gerðu það að verkum að útgáfudagur breiðskífunnar seinkaði óheyrilega mikið.

Mixmaster Morris þótti hæfur endurhljóðblandari, en endurhljóðblöndun hans á verki Coldcut,Autumn Leaves, er talið vera eitt af meistaraverkum sveimtónlistarsögunnar. Stuðboltinn Norman Cook, sem margir þekkja sem Fatboy Slim, útlistar þá endurhljóðblöndun sem uppáhalds sveimtónlistarlag allra tíma. Hann hefur endurhljóðblandað t.a.m. Lloyd Cole, Higher Intelligence Agency, Sven Våth, Rising High Collective, Hardfloor og áströlsku popparana í INXS.

Hann hefur starfað t.a.m. með listamönnum á borð við Pete Namlook, en saman mynduðu þeir raftónlistardúóið Dreamfish, og Haruomi Hosono, sem er best þekktur sem meðlimur hljómsveitarinnar Yellow Magic Orchestra.

Á hátíðinni má finna eitthvað fyrir alla, en þeir sem koma einnig fram er landslið íslenskrar raftónlistar t.a.m. Ahma, Arni Vector, Arnljótur, Beatmakin Troopa, Bix, Captain Fufanu, Dj AnDre, Dj Kári, Futuregrapher, Hamlette Hok, Inferno 5 , Jafet Melge, Jónas Sen, Krummi, La La Alaska, Murya, Orang Volante, Prince Valium, Quadruplos, Reptilicus, Ruxpin, Samaris, Sigtryggur Berg, Skurken, Stereo Hypnosis, Steve Sampling, Tanya&Marlon, ThizOne, Tonik, Trouble og Yagya. Einnig mun hinn eistneski raftöframaðurinn Kaido Kirikmae heiðra okkur með nærveru sinni.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.