Viðhengi
Nú hefur verið gert opinbert hverjir eru tilnefndir til Grímunnar árið 2012. Þetta ár er frábært leikár og eru sýningarnar 5 sem tilnefndar eru sem Sýning ársins, hver annarri betri. Þetta eru sýningarnar Afmælisveislan eftir Harold Pinter, Heimsljós Halldórs Laxness, Hreinsun eftir Sofi Oksanen og Vesalingarnir eftir Alain Boublil og Claude-‐Michel Schönberg og Tengdó eftir Val Frey Einarsson. Einnig fá leikstjórar allra þessara sýninga tilnefningu til leikstjóra ársins en þeir eru Guðjón Pedersen (Afmælisveislan), Jón Páll Eyjólfsson (Tengdó), Kjartan Ragnarsson (Heimsljós), Selma Björnsdóttir (Vesalingarnir) og Stefán Jónsson (Hreinsun).
Söngvarnir sem fá tilnefningu sem söngvari ársins eru Egill Ólafsson (Vesalingarnir), Gissur Páll Gissurarson (La Boheme), Þór Breiðfjörð (Vesalingarnir) og Þóra Einarsdóttir fær tvær tilnefningar í þessum flokki (La Boheme og Töfraflautan).

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013