Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
14:00 › 1. júní 2012
Þáttaröðin Girls er væntanleg á Stöð 2 en þættirnir hafa slegið í gegn vestanhafs. Hin 26 ára Lena Dunham er allt í öllu í þessum raunsæu en opinskáu gamanþáttum. Dunham skrifar handritið, leikstýrir og leikur Hönnuh, aðalpersónuna.
Lena var aðeins 23 ára þegar hún hlaut fjölda verðlauna fyrir kvikmyndina Tiny Furniture. Gagnrýnendur voru því fullir eftirvæntingar þegar ljóst var að HBO hefði gert gamanþáttarsamning við Dunham. Síðan sýningar hófust hefur borið á neikvæðri gagnrýni þar sem allar persónur þáttanna eru hvítar. „Ég skrifaði þessar persónur út frá hjartanu. Ég eða einhver nærri mér er í þeim öllum. Ég gerði mér ekki grein fyrir að þær voru allar hvítar fyrr en mér var bent á það,“ hefur verið haft eftir Dunham.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013