Sigur leikstjórans

Afmælisveislan vel heppnað verk

Afmælisveislan

Afmælisveislan: Þrjár og hálf stjarna
Þjóðleikhúsið: Afmælisveislan eftir Harold Pinter
Þýðing: Bragi Ólafsson
Leikstjórn: Guðjón Pedersen
Leikmynd: Grétar Reynisson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson

Jón Viðar Jónsson gefur leiksýningunni Afmælisveislan góða dóma. Hér er birtur úrdráttur úr leikdómi hans, áskrifendur Dv.is geta lesið dóminn í heild sinni.

Sýningin er þó umfram allt sigur fyrir leikstjórann, Guðjón Pedersen, sem hefur verið fjarri leiksviðum höfuðborgarinnar um nokkurt skeið. Guðjón hefur verið mistækur leikstjóri í tímans rás og margt af því sem hann gerði í Borgarleikhúsinu var alls ekki gott. En hann snýr aftur tví- ef ekki þríefldur; þetta er glæsileg endurkoma hjá honum og gefur fyrirheit um gott framhald. Leikmynd Grétars Reynissonar virðist leitast við að segja sem minnst um mannlífið í þessu húsi, aftengja verkið stað og stund; þetta er þó brothættur heimur, það er ljóst. Fyrir minn smekk var hún full snautleg og jafnvel á mörkum ofsagnarinnar: aðeins innra byrðið í ferhyrndum kassa, hinu lokaða herbergi sem Pinter var svo hugleikið. Búningar Helgu I. Stefánsdóttir voru hins vegar alveg raunsæislegir og virkuðu hárréttir.

Textar Pinters eru vandþýddir og sumir allt að því óþýðanlegir sökum þess hversu bundnir þeir eru ensku hugarfari og tjáningarmáta. Mér heyrðist Bragi Ólafsson hafa komist nokkuð vel frá því vandaverki, þó að um einstök atriði megi sjálfsagt deila. Ég kann því aldrei vel við að halda því titlatogi sem enskum er eiginlegt – herra þetta, frú hitt – og hefði kosið að hann sleppti því, en léti eftirnöfnin ein standa og jafnvel á bætt það upp með þéringum sem voru enn sjálfsagður hlutur á þeim tíma þegar leikurinn var saminn. Er nokkur ástæða til að hætta alveg að þéra á íslensku sviði, þó að þeir yngri séu víst að mestu búnir að týna þeirri list niður, svona í daglegu lífi?

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.