Dorrit í bandarískum spjallþætti

Kynnti Ísland fyrir Mörthu Stewart

Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands, kemur fram í sjónvarpsþætti Mörthu Stewart sem sýndur verður í Bandaríkjunum í kvöld. Í þættinum verður fjallað um ferðaþjónustu, hönnun, hollustu, íslenska hestinn og mat, samkvæmt tilkynningu frá forsetaembættinu.

Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir einnig að þættirnir séu afar vinsælir í Bandaríkjunum og að þeir séu sendir út í yfir 50 löndum. Framleiðslu þáttanna hefur hinsvegar verið hætt en gert er ráð fyrir því að síðustu þættirnir sem búið var að taka upp fyrr á árinu verði sýndir.

Kynningin í sjónvarpsþættinum var samkvæmt forsetaembættinu unnin í samvinnu við Hlyn Guðjónsson, ræðismanna Íslands í New York og viðskiptafulltrúa í Bandaríkjunum, og aðra íslenska aðila. Íslenskum mat er gert hátt undir höfði í þættinum auk þess sem Dorrit og Martha setjast á bak á íslenskum hestum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.