Rappar gegn kvenfyrirlitningu

„Eitt stórt diss á typpafnykinn“

„Allir vita það að Hip Hop senan á íslandi er útsprungin af typpaveldi og kvenfyrirlitningu.“ Þetta er á meðal þess sem kemur fram í kynningartexta á nýju myndbandi við lagið Passaðu þig eftir Þórdísi Nadiu Semichat sem frumflutt verður næstkomandi fimmtudag. Þar kemur fram að lagið sé pródúserað af Redd Lights en myndbandinu leikstýrt af Eilífi Erni Þrastarsyni.

Þetta er frumraun Nadiu í tónlistinni en hún gerði garðinn frægan með Uppistöðufélaginu. Þar tók hópur ungra kvenna sig til og kom á fót uppistandshópi en fram að því höfðu strákarnir í Mið-Íslandi verið mest áberandi á því sviði. Uppátækið sló í gegn en troðfullt var á atburði hópsins og í kjölfarið var meðal annars gerð heimildarmynd gerð um Nadiu og félaga.

Nú virðist svo komið að karlaveldið í Hip-Hop heimi landsins geti farið að passa sig. Á Facebook síðu þar sem frumflutningur lagsins er kynntur segir: „Allir vita það að Hip Hop senan á íslandi er útsprungin af typpaveldi og kvenfyrirlitningu. Lagið Passaðu þig er eitt stórt diss á typpafnykinn sem er búinn að vera viðloðandi í íslensku rappi og tími til kominn að einhver kvenmaður taki málin í sínar eigin hendur!“

Þórdís Nadia Semichat, sem auk þess að vera uppistandari er Íslandsmeistari í magadansi og leikkona, býður öllum í frumsýningarpartý á fimmtudaginn, en það hefst á Bakkus klukkan níu og stendur fram eftir kvöldi. „Ekki missa af þessu byltingarkennda lagi og myndbandi, komdu og láttu sjá þig!“ Segir á Facebook síðu atburðarins.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.