Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:00 › 5. maí 2012
Söngkonan Þórunn Antonía fagnar sumri með tónleikum á Gauknum á laugardagskvöldið.
Ásamt Þórunni Antoníu koma fram á tónleikunum hljómsveitin Kiriyama Family og Úlfur Úlfur. Davíð Berndsen þeytir svo skífur að tónleikum loknum.
Þórunn lofar mikilli stemmingu á tónleikunum sem hefjast klukkan 21. Þórunn hvetur fólk til að mæta snemma því að fyrsta klukkutímann er 2 fyrir 1 af drykkjum á barnum og vafalaust hægt að fá sér sumarkokteila til að koma sér í sumarskap.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013