„Það fer að styttast í að ég verði hálfnaður með raddirnar“

Halldór Gunnar tekur upp rödd þjóðarinnar

Halldór Gunnar Pálsson, Fjallabróðir og tónlistarmaður var kátur þegar blaðamaður náði tali af honum í morgun, en hann sem kunnugt er á ferðalagi um landið að taka upp raddir þjóðarinnar fyrir lagið Ísland.

Í dag er hann staddur í Vestmannaeyjum, þar sem hann hefur verið síðan á föstudag að taka upp með lúðrasveit Vestmannaeyja sem sér um bálsturshljóðfæra-kafla lagsins.

„Það var rosalega stór áfangi í gær að ná að klára að spila lúðrasveitina inn á lagið,“ segir Halldór í samtali við DV.is. „Þetta er alltaf að færast nær og nær,“ segir hann.

„Maður heyrir alltaf betur hvernig heildarmyndin er að verða til. Það fer að styttast í að ég verði hálfnaður með raddirnar,“ segir Halldór. Nú þegar hafa fjölmargir aðstoðað og ljáð laginu raddir sínar, en einhverstaðar á milli sjö til átta þúsund manns hafa tekið þátt. Það er þó enn mikið eftir, en markmiðið er að þrjátíu þúsund Íslendingar taki þátt. Halldór á enn eftir að ferðast víða um landið.

Hann vonast til þess að lokahnykkurinn verði tekinn á menningarnótt í Reykjavík í ágúst.

Halldór Gunnar verður í dag í Höllinni í Eyjum klukkan fjögur og biður alla sem vettlingi geta valdið að koma og taka þátt í rödd þjóðarinnar. Hægt er að fræðast nánar um verkefni Halldórs hér á síðunni Þjóðlag.is


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.