Hljómsveitin Bee Gees, sem naut nánast óslitinna vinsælda frá útgáfu lagsins Massachusetts árið 1967, var skipuð bræðrunum Barry, Robin og Maurice Gibb. Bræðurnir fæddust á Isle of Man en ólust fyrstu árin upp í Chorlton í Manchester á Englandi. Yngsti bróðirinn, sem naut nokkurra vinsælda sem tónlistarmaður hét Andy, en hann varð aldrei hluti af Bee Gees. Andy var átrúnaðargoð unglinga á níunda áratugnum en hann lést úr sjúkdómi árið 1988.
Fjölskyldan flutti til Ástralíu síðla á sjötta áratugnum, til Queensland nánar tiltekið, og þar hófst tónlistarferill bræðranna.
Reyndar má segja að hljómsveitin hafi veri í lægð lungann úr áttunda áratug síðustu aldar en með tilkomu diskótónlistar tókst bræðrunum að blása nýju lífi í nánast kulnaðar glæður.
Hljómsveitin varð þekkt fyrir þéttan, þríraddaðan söng en fyrstu árin sá Robin að mestu leyti um sönginn. Seint á áttunda áratugnum og á þeim níunda varð aðalsmerki hljómsveitarinnar falsetta Barrys var þéttur þríraddaður söngur bræðranna.
Ítarleg umfjöllun er um Gibb bræður í helgarblaði DV. Áskrifendur DV.is geta lesið umfjöllunina alla á vefnum.


Hemmi Gunn fallinn frá