Aldraður, ekki andaður „Hump“

Bretar tefla ekki fram neinu ungviði í Eurovision í ár

Þrátt fyrir að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan Engelbert Humperdinck, eða Hump eins og hann er stundum kallaður, átti smell hefur hann ekki setið aðgerðalaus með hendur í skauti. Hann ku njóta einhverra vinsælda í nokkrum þeirra landa sem taka þátt – og kjósa – í Eurovision-keppninni í ár.

Í fyrra lagði hann land undir fót og fór í hljómleikaferðalag um Belgíu, Rúmeníu, Holland og stakk meira að segja niður fæti í Ísrael.

Engelbert er án efa vel þekktur og kynntur á alþjóðlega tónlistarsviðinu. Hann hefur selt yfir 150 milljónir hljómplatna, verið tilnefndur til Grammy-verðlauna fjórum sinnum og hlotið Golden Globe-verðlaunin sem skemmtikraftur ársins.

Engelbert Humperdinck hefur fengið 63 gullplötur og 24 platínuplötur og varð þess heiðurs aðnjótandi að fá stjörnu á Hollywood Walk of Fame – geri aðrir betur.

Hver veit nema vinsældir hans gangi í endurnýjun lífdaga með þátttöku hans í Eurovision.

Grein um Engelbert Humperdinck með skemmtilegum staðreyndum úr lífi hans er að finna í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið hana í heild sinni á DV.is

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.