„Þau komast leikandi upp úr undankeppninni á morgun – jafnvel vinna hana,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður og Eurovision-spekingur, um gengi Gretu Salóme og Jónsa í undankeppni Eurovision. Hann hefur fylgst vel með undirbúningnum og æfingum í Bakú í Aserbaídjan í gegnum netið. Páll Óskar er bjartsýnn á að Ísland nái langt í keppninni í ár.
„Það getur vel gerst að Ísland sé að fara að keppa við Svíþjóð um toppsætið á laugardaginn!“ segir Páll Óskar og segist vel geta séð fyrir sér að sama staða komi upp í ár og var árið 1999 þegar söngkonan Selma Björnsdóttir keppti við Charlotte Nilsson, frá Svíþjóð, um sigurinn. „Það er ekkert sem kemur í veg fyrir það eins og staðan er núna.“
Íslenski hópurinn stígur á svið á fyrra undanúrslitakvöldi söngvakeppninnar sem fram fer á morgun þriðjudag. Seinni undanúrslitakvöldið er svo á fimmtudag og þá stígur sænski flytjandinn á svið, en framlag Svía í keppninni hefur verið afar vinsælt. Úrslitakeppnin fer svo fram á laugardag og kemur þá í ljós hvaða þjóð stendur uppi sem sigurvegari í keppninni í ár.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013