Vampírur og unglingaástir

Bræður berjast í The Vampire Diaries

Þátturinn The Vampire Diaries fjallar um menntaskólastelpuna Elenu Gilbert og bræðurna og vampíurnar Stefan og Damon Salvatore.

Elena er leikin af Nina Dobrev, fædd árið 1989 í Sofíu í Búlgaríu. Nina flutti til Kanada þegar hún var tveggja ára. Hún var um tíma í kanadíska landsliðinu í gólffimleikum.

Stefan er leikinn af Paul Wesley, 30 ára. Wesley fæddist í Bandaríkjunum. Fjölskylda hans dvelur nokkra mánuði á ári í Pólllandi en foreldrar Wesley eru pólskir. Paul var hálfgerður vandræðaunglingur á yngri árum. Hann sótti prufur fyrir hlutverk Stefans og Damons en var talinn henta betur sem góði bróðirinn Stefan. Paul er kvæntur leikkonunni Torrey DeVitto.

Ian Somerhalder, 36 ára, leikur slæma bróðirinn Damon Salvatore. Ian á glæstan fyrirsætuferil að baki en hann hefur starfað fyrir Calvin Klein, Dolce & Gabanna, Gucci, Versace og Guess.

Í þættinum berjast Stefan og Damon um ást Elenu en í raunveruleikanum er það Ian sem hefur vinninginn. Þau Nina hafa verið par frá árinu 2010.

Stjörnurnar í viðtali:


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.