Eurovision-kosning er hafin hér á DV.is og gefst lesendum tækifæri á að velja það lag sem þeim lýst best á. Kosningin er með einföldu sniði og þarf aðeins að vera innskráður á Facebook til að geta tekið þátt. Til að kjósa smellirðu hér. Á vefnum getur þú líka hlusta á öll lögin og horft á myndböndin sem gerð voru fyrir hvert lag fyrir sig.
Íslenski Eurovision-hópurinn, með Gretu Salóme og Jónsa í broddi fylkingar, er kominn til Bakú í Aserbaídsjan og eru æfingar þegar hafnar. Keppnin sjálf hefst svo 22. maí næstkomandi og fær hópurinn eitt tækifæri til að syngja sig inn í úrslit keppninnar. Allt veltur það hinsvegar á stuðningi íbúa Evrópu hvort Greta Salóme og Jónsi stíga á sviðið í úrslitunum þann 26. maí.
Taktu þátt í Eurovision-kosningu DV.is hér.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013