Alda Björk Valdimarsdóttir birtir greinina: Hann lagði okkur í ræsið á hverri síðu, í næsta tölublaði Skírnis sem kemur út innan skamms. Í greininni er fjallað um nýjustu skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Konan við 1000 gráður og aðalsöguhetjuna, Herbjörgu Maríu Björnsson, konu sem lifði af voðaatburði stríðsáranna. Herbjörg María er eins og margir vita byggð á raunverulegri persónu; barnabarni Sveins Björnssonar forseta, Brynhildi Georgíu Björnsson.
Efnistök Hallgríms fengu hörð viðbrögð ættingja og í grein Öldu er fjallað um efnistök hans, umræðu í fjölmiðlum og á netinu og síðast en ekki síst viðbrögð ættingja.
Í viðtali við DV í nóvember 2011 sagði Hallgrímur Helgason frá því hvernig hann fékk hugmyndina að Konunni við 1000 gráður. Þar lýsti hann því hvernig hann talaði við Brynhildi í síma í úthringingum fyrir þáverandi sambýliskonu sína Oddnýju Sturludóttur fyrir sveitarstjórnarkosningar. „Ég var nú bara heillaður af þessari gömlu konu sem var einhvern veginn með allan heiminn í þessum bílskúr sínum. Eins og guð, ósýnileg, en samt aktíf. Úr bílskúrnum hafði hún með hjálp fartölvu samskipti við fólk út um allan heim.“
Hallgrímur hitti aldrei Brynhildi en ákvað að skrifa um hana bók.
Í grein Öldu er borin saman ævisaga Brynhildar sem skrifuð var af Steingrími Th. Sigurðssyni og sú mynd er birtist af Brynhildi í skáldsögu Hallgríms.
Sjálfur hefur Hallgrímur sagst hafa verið á gráu svæði í skrifum sínum um Brynhildi en valið að vera góður rithöfundur fremur en góð manneskja. Í grein Öldu er enn fremur varpað ljósi á það gráa svæði og efnistök rithöfunda sem nota raunverulegar fyrirmyndir í skrifum sínum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013