„Það verða ný lög núna og nýir söngvarar að mestu. Þetta eru svona lög sem eiga sér stað í hjörtum flestra Íslendinga,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson sem nú er í óða önn að skipuleggja tónleika í Hörpu á lýðveldisdaginn sjálfan, 17. júní næstkomandi. Tónleikarnir bera nafnið Dægurperlur en þetta er í annað sinn sem Helgi heldur tónleika í Hörpu þennan dag. Tónleikarnir í fyrra báru sama nafn og var gerður góður rómur að þeim. Það voru með fyrstu popptónleikum sem haldnir voru í þá nýrisnu tónlistarhúsinu Hörpu.
Þjóðhátíðarstemming
Eins og nafnið gefur til kynna er lagt upp með íslenskar dægurperlur á tónleikunum. Lögum sem hafa fylgt þjóðinni og flestir þekkja. Helgi segir afar viðeigandi að flytja slíka tónlist á þjóhátíðardaginn sjálfan. „Svo var bara einhver alveg sérstök þjóðhátíðarstemming sem myndaðist á þessum þjóðhátíðardegi þegar við vorum að fara í gegnum þess poppklassík. Það var eitthvað sem gerðist og ég er sannfærður um að það gerist líka núna.“
Helgi er á fullu að finna íslenskar dægurperlur sem sungnar verða á tónleikunum en það verða ekki sömu lög og í fyrra. „Þetta er smá höfuðverkur en mjög gaman. Maður er að reyna að hafa mikla breidd í þessu og þetta eru lög alveg frá í kringum 1940 og til dagsins í dag.“
Lögin koma úr öllum áttum
Fjölmargir íslenskir söngvarar koma fram á tónleikunum. „Það verður mikið úrval og skemmtileg breidd af söngvurum sem koma fram með mér. Valdimar Guðmundsson, Ragnhildur Gísladóttir, Sigríður Thorlacius, John Grant, Eivör, KK og Jón Jónsson. Svo verð ég með stóra hljómsveit, strengi og brass sem Samúel J. Samúelsson kemur til með að stjórna.“
Helgi sér að mestu um lagavalið en þó koma söngvararnir þar aðeins við sögu. „Ég vel lögin að mestu en það er svona bæði og. Sumir eru með einhver lög í huga og svona. Ég er að grúska í gömlum og nýjum plötum að finna lög og svo er gaukað að manni líka. Þetta kemur úr öllum áttum.“
Hann gefur ekkert upp um einstaka lög því hann vill að það komi á óvart. „Það er hluti af stemmingunni. Maður er svolítið að reyna að koma á óvart og ég var til dæmis spurður fyrir tónleikana í fyrra hvort ég ætlaði ekki að vera með efnisskrá en það er hluti af þessu að fólk viti ekki hvaða lag komi næst.“
Skipuleggur Landsmót
Það er nóg um að vera hjá Helga sem nýlega lauk við að leika í Axlar Birni í uppfærslu Vesturports og kvikmyndinni XL. Fram undan er nóg af verkefnum, meðal annars er Helgi að skipuleggja Landsmót hestamanna sem haldið verður í Víðidalnum í Reykjavík fyrstu helgina í júlí. „Það má búast við mikilli stemmingu þarna. Nú geta höfuðborgarbúar líka kíkt án þess að þurfa að ferðast með tjaldvagn. Það verður mikil dagskrá fyrir alla fjölskylduna og mikið stuð,“ segir Helgi sem er mikill hestamaður en hann mun skemmta á mótinu. Eftir mótið ætlar hann að taka sér verðskuldað frí. „Það er búið að vera mikið að gera og ég ætla að taka mér gott frí eftir tónleikana og mótið,“ segir Helgi að lokum, í miklu þjóðhátíðarskapi.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi