Francis Lawrence leikstýrir Catching Fire

Gary Ross þótti of mjúkur

Kvikmyndaverið Lionsgate hefur ráðið Francis Lawrence til þess að leikstýra framhaldi Hungurleikanna, Catching Fire.

Hungurleikarnir hafa náð gríðarlegum vinsældum í Bandaríkjunum en þrátt fyrir það fær Gary Ross ekki að þróa hugmyndir sínar áfram. Hann þótti ekki gefa nægilega hart sjónarhorn.

Lawrence hefur áður leikstýrt I Am Legend og Water for Elephants og er á lausu í verkefnið en aðrir sem komu til greina voru uppteknir í öðrum verkefnum. Þeir voru Benedict Miller, Tomas Alfredson (Let the Rigth One In, Tinker Tailor Soldier Spy), Alejandro Gonzalez Innaritu (Babel), Cary Fukunaga (Jane Eyre) og Duncan Jones (Moon, Source Code).

Kvikmyndagerðarmenn hafa lítinn tíma til stefnu en Lionsgate áætlar frumsýningu þann 22. nóvember 2013. Fjórar myndir verða gerðar eftir þríleik Suzanne Collins.

Jennifer Lawrence, stjarna myndanna, er mjög upptekin við kvikmyndaleik þessa dagana og því þarf að miða tökur við feril hennar. Hún mun einnig leika í nýrri X-Men-kvikmynd á svipuðum tíma og tökur fara fram á Catching Fire.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.