Simpson-fjölskyldan býr í Oregon

Matt Groening upplýsir hver fyrirmyndin af Springfield er

Matt Groening hefur loksins ljóstrað því upp hvaða borg hann notaði sem fyrirmyndina af Springfield, heimaborg Simpson fjölskyldunnar, í einum vinsælustu teiknimyndaþáttum heims. Borgin er mótuð eftir Springfield í Oregon sem er nálægt bænum þar sem Groening sjálfur ólst upp.

Þetta kom fram í viðtali við Groening sen birtist í Smithsonian Magazine sem kemur út í maí næstkomandi. Það ætti kannski ekki að koma hörðustu aðdáendum Simpson-þáttanna á óvart því margt annað í þáttunum er byggt á æsku og ævi Groening. Til að mynda eru nöfn fjölskyldumeðlimanna í Simpson fjölskyldunni nöfn foreldra og systra hans sjálfs.

Aðdáendur þáttanna um Simpson fjölskylduna hafa í mörg ár velt því fyrir sér hvaða bæ Groening notaði sem fyrirmyndina af heimabæ fjölskyldunnar en nafnið Springfield er eitt algengasta bæjarnafn í Bandaríkjunum. Groening hefur aldrei viljað upplýsa um það til að eyðileggja ekki fyrir fólki sem hefur gaman af því að spá og spekúlera í því hver fyrirmynd sé.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.