Eddan verður afhent þann 18 febrúar næstkomandi og hefur hún verið talin nokkurskonar uppskeruhátíð íslenskra kvikmynda. Margir hafa furðað sig á því að heimildamyndirnar Icelands volcano eruption , eða Eldur í jökli og Into Iceland's Volcano voru ekki tilnefndar til verðlauna. Báðar myndirnar hafa vakið mikla athygli erlendis og var Eldur í jökli meðal annars tilnefnd til Emmy verðlauna fyrir framúrskarandi kvikmyndatöku og Into Iceland's Volcano til Jackson Hole kvikmyndaverðlaunanna. Myndirnar eru framleiddar af framleiðslufyrirtækinu Profilm, en voru með erlendu fjármagni í gegn um Nationa Geography fræðslurisann.
Profilm sérhæfir sig í gerð heimildamynda og að fyrirtækinu standa þau Jóhann Sigfússon,
Anna Dís Ólafsdóttir og Hinrik Ólafsson sem sjá um framleiðslu myndanna.
Jóhann, sem leikstýrði báðum kvikmyndunum segist hissa á þessu og veltir því fyrir sér hvort Eddan sé betri en Emmy verðlaunin. „Þetta eru tvær sjálfstæðar myndir sem hanga samt saman. Við sendum þær saman í Edduna sem seríu af myndum,“ segir Jóhann og segist upplifa þetta sem svo að Eddan sé aðeins fyrir ákveðinn hóp. „Þetta á að vera fyrir alla kvikmyndagerðamenn í landinu,“ segir hann. Profilm hefur fundið fyrir því að margir eru hissa á því að myndirnar séu ekki tilnefndar.
„Ég held að þetta sé vegna þess að þetta er gert fyrir erlent fjármagn. Það er National geographic sem borgar fyrir þær. Ég held að fólk haldi að við höfum verið þjónustuaðilar fyrir þá, en ekki unnið þetta sjálf og þetta sé erlend mynd, en það er ekki rétt,“ segir Jóhann og bendir á að það er íslenskur leikstjóri, kvikmyndatökumaður, hljóðmaður og það eru Íslendingar sem koma fram í myndinni. Þar að auki er hún af íslensku framleiðslufyrirtæki. „Eini erlendi aðilinn sem kemur að henni er sá sem kemur með peninginn,“ segir Jóhann. „Mér finnst verið að segja að Eddan sé meiri en Emmy.“
Profilm hefur nú selt þriðju heimildarmynd sína til National Geograhic. Myndin heitir Elephant Whisperer og fjallar um asíska fílinn sem er að deyja út og hvernig nú er reynt að snúa þróuninni við.
Hér fyrir neðan má sjá brot úr myndinni Icelands Volcano Eruption
Trailer:Icelands volcano eruption / Into Icelands volcano from Profilm on Vimeo.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Meint kvenhatur í Cannes
Allur heimurinn verður rafmagnslaus
Francis Lawrence leikstýrir Catching Fire
Russell Crowe til landsins
Laxness í lifandi myndum
