ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Clooney í tilvistarkreppu

Jón Ingi Stefánsson joningi@dv.is
22:00 › 23. janúar 2012
The Descendants

Leikstjóri: Alexander Payne.
Handrit: Alexander Payne, Nat Faxon og Jim Rash, byggt á bók Kaui Hart Hemmings.
Leikarar: George Clooney, Shailene Woodley, Amara Miller, Nick Krause, Robert Forster.
Lengd: 115 mínútur.

IMDb: 7,9/10 RottenTomatoes: 89% Metacritic: 84/100


  • George Clooney stendur sig vel í hlutverki sínu ásamt þeim Shailene Woodley, Amara Miller og Nick Krause.

    George Clooney stendur sig vel í hlutverki sínu ásamt þeim Shailene Woodley, Amara Miller og Nick Krause.

Lögfræðingurinn og stórlandeigandinn Matt King (Clooney) stendur frammi fyrir því að þurfa að endurheimta tengslin við dætur sínar á meðan eiginkona hans liggur fyrir dauðanum á sjúkrahúsi. Myndin hlaut þrenn verðlaun á Golden Globe-hátíðinni á dögunum.

Þetta er fyrsta mynd leikstjórans Alexanders Payne síðan hann sendi frá sér hina frábæru Sideways árið 2004. Áður hafði hann vakið verðskuldaða athygli fyrir Election og About Schmidt. Eins og í fyrri myndum Paynes er fókusinn hér á miðaldra karlmann í tilvistarkreppu.

Matt King hefur fengið allt upp í hendurnar í lífinu en kemst að því að hann er með allt niðrum sig þegar konan hans leggst í dá eftir hræðilegt sjóslys. George Clooney ljær karakternum sinn alkunna sjarma og kemst virkilega vel frá hlutverkinu.

Tónn myndarinnar er léttur þrátt fyrir alvarleg efnistök og byggir myndin að mestu á uppbyggingu persóna í erfiðum kafla í lífi þeirra. Þó svo að tilfinningarík atriði megi vissulega finna í myndinni er aldrei gengið of langt í tilfinningakláminu.

Leikaraliðið er í heild sinni mjög gott. Þar ber helst að nefna Shailene Woodley og Amara Miller, sem fara með hlutverk dætranna og standa sig með stakri prýði.

The Descendants er frábær mynd sem á margt sameiginlegt með fyrri myndum Alexanders Payne. Óhætt er að mæla sterklega með henni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?