Útlit er fyrir að Contraband, kvikmynd Baltasars Kormáks, falli niður í þriðja sæti yfir vinsælustu kvikmyndirnar vestanhafs. Á vefsíðunni BoxOffice.com er gert ráð fyrir því að myndin hali inn 11,8 milljón dala í miðasölu um helgina. Það er um 52 prósentum minna en um síðustu helgi, þegar myndin var frumsýnd.
Þetta þýðir að tekjur af Contraband eru komnar í tæpar 45,7 milljónir dala, jafnvirði um 5,7 milljarða íslenskra króna, sem er 20 milljónum dala meira en myndin kostaði í framleiðslu. Myndin er því farin að skila hagnaði.
Myndin heldur einnig áfram að fá góðar viðtökur á samskiptasíðunni Twitter. Vefsíðan BoxOffice.com tekur saman viðbrögð fólks á Twitter við ýmsum myndum og er jákvæðnistuðull myndarinnar 16:1.
Myndin er enn fyrir ofan Fríðu og Dýrið í þrívídd, sem var í öðru sæti um síðustu helgi þegar Contraband var á toppnum. Sú mynd er dottin niður í fimmta sæti og gert er ráð fyrri að hún hali inn 8,5 milljónum dala núna um helgina.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Meint kvenhatur í Cannes
Allur heimurinn verður rafmagnslaus
Francis Lawrence leikstýrir Catching Fire
Russell Crowe til landsins
Laxness í lifandi myndum
