ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Frjálst og hrátt með Fjallabræðrum

Halda sína fyrstu tónleika í Hofi á Akureyri á laugardagskvöld
20:57 › 20. janúar 2012
Við æfingar. Halldór Gunnar kórstjóri og Unnur Birna leiða Fjallabræður í söng.

Við æfingar. Halldór Gunnar kórstjóri og Unnur Birna leiða Fjallabræður í söng.

  • Fjallabræður hafa verið á meðal vinsælustu kóra landsins.

    Fjallabræður hafa verið á meðal vinsælustu kóra landsins.

Karlakórinn Fjallabræður heldur sína fyrstu tónleika í Hofi á Akureyri á laugardagskvöldið. Þar mun „fallegasti Fjallabróðirinn“, Unnur Birna, syngja með kórnum í síðasta skiptið í bili en hún er á leið til Rómar. DV skellti sér á æfingu með þessum hressa kór og sá hann undirbúa sig fyrir tónleikana norðan heiða.

„Strákar, hættið þið þessu masi. Við þurfum að fara að byrja þetta,“ sagði Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, í upphafi kóræfingar á miðvikudagskvöldið. Þetta þarf hann alltaf að gera – og oft á hverri æfingu. Það er stórmál að stjórna á milli 40 og 50 körlum á kóræfingu. Og þeir hafa allir gaman af því að tala – sérstaklega Stebbi panda eins og hann er kallaður. „Fyrsta lagið sem við æfum er Ísland,“ sagði Halldór, sneri sér að hljómsveitinni og takturinn var sleginn. Æfingin var byrjuð.

Fyrstu tónleikarnir fyrir norðan
Það stendur mikið til hjá Fjallabræðrum. Á morgun, laugardag, halda þeir sína fyrstu tónleika á Akureyri – í Hofi. Þrátt fyrir að bræðurnir hafi allir einhverja tengingu vestur á firði þá bera þeir allir sterkar taugar til landsbyggðarinnar. „Norðurland á mjög stóran sess í mínu hjarta, móðir mín Magnea Guðmundsdóttir, býr í Skagafirði og fyrsti vísirinn að Fjallabræðrum varð til í Skagafirði. Svo finnst mér líka svo fallegt fyrir norðan, blómlegar sveitir og öflugar útgerðir,“ segir Halldór Gunnar en hann hefur stjórnað Fjallabræðrum frá upphafi. Í fyrstu var kórinn óformlegur – nokkrir strákar að vestan sem hittust reglulega til að syngja.

Nánar um Fjallabræður í helgarblaði DV. Áskrifendur geta skráð sig inn og lesið greinina í heild sinni með því að smella á „meira“

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?