Nýjasta vonarstjarna sjónvarpsstöðvarinnar HBO er þátturinn Girls. Hann er skrifaður af Lenu Dunham, sem leikstýrir honum auk þess að fara með aðalhlutverkið.
Í þættinum eru fjórum ungum stúlkum í New York fylgt eftir útskrift úr háskóla og fylgst með þeim feta sig á framabraut og í ástalífinu.
„Þessar stúlkur uxu úr grasi með Carrie, Samönthu, Miröndu og Charlotte sem fyrirmyndir og eru nú sjálfar fluttar til stórborgarinnar. Lífið er hins vegar ekki jafn spennandi og það sýndist vera í Sex and the City,“ sagði Dunham í nýlegu viðtali og bætti við að Girls væri í rauninni raunsærri útgáfa af Sex and the City.
Dunham er aðeins 25 ára og vakti mikla athygli árið 2010 með kvikmyndinni Tiny Furniture sem hún skrifaði, leikstýrði og lék í en kvikmyndin vann til fjölda verðlauna og fékk enn fleiri verðlaunatilnefningar.
Dunham segir þættina Girls að hluta til byggða á eigin reynslu. Þar leikur hún Hönnuh, unga konu sem þarf að takast á við lífið og tilveruna eftir að foreldrar hennar hætta að borga með henni.
„Persónurnar í þáttunum gera mörg mistök. Við eigum eftir að reiðast þeim en þær eru að gera sitt besta.“
Þátturinn Girls hefst á HBO í apríl.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Óljóst „hvernig“ sumir snúa aftur
Hulk í sjónvarp
Aðalpersóna lætur lífið í Grey's anatomy
Vampírur og unglingaástir
Andrés Önd slær í gegn á síðu Caspers úr Klovn
