ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Njósnari eltir njósnara

Jón Ingi Stefánsson joningi@dv.is
06:00 › 18. janúar 2012
Tinker Tailor Soldier Spy

Leikstjóri: Tomas Alfredsson.
Handrit: Bridget O'Connor og Peter Straughan eftir skáldsögu John le Carré.
Leikarar: Gary Oldman, Colin Firth, Tom Hardy, John Hurt, Ciarán Hinds.
Lengd: 128 mínútur.

iMDb: 7,6 / 10
RottenTomatoes: 84%
Metacritic: 85/100


  • Gary Oldman er magnaður í aðalhlutverkinu.

    Gary Oldman er magnaður í aðalhlutverkinu.

Tinker Tailor Soldier Spy, byggð á samnefndri sögu John Le Carré, gerist um miðjan 8. áratuginn og segir frá leit reynds bresks njósnara (Oldman) að sóvéskum gagnnjósnara í röðum bresku leyniþjónustunnar.

Tomas Alfredsson leikstjóri (Låt den rätte komma in) skapar magnað andrúmsloft, heldur öllu undir rós og forðast óþarfa dramatík. Sagan er vissulega nokkuð flókin, persónurnar margar og mikið um njósnaratal sem getur reynst torskilið. Myndin treystir því mjög á athyglisgáfu áhorfandans og þolinmæði. Leikstjórinn meðlöndlar efnið samt vel og maður fær á tilfinninguna að hann hafi fengið mjög frjálsar hendur hjá framleiðendum myndarinnar.

Leikaraliðið er í heild sinni frábært og sýnir Gary Oldman nær fullkomna frammistöðu í hlutverki njósnarans Smiley sem fær það vandasama verkefni við lok ferilsins að njósna um samstarfsmenn sína. Smiley er hæglátur og athugull, en ákveðinn og vægðarlaus þegar það á við.

Allt útlit myndarinnar er til fyrirmyndar og tekist hefur að skapa trúverðugt andrúmsloft án alls glamúrs þar sem grámyglulegur raunveruleikinn er allsráðandi. Myndin er auk þess laus við allar klisjur sem vilja loða við njósnamyndir og Alfredsson leikstjóri sneiðir hjá prédikunum um pólitíska hugmyndafræði. Áherslan er lögð á andrúmsloftið og persónusköpunina og eftir stendur gáfuleg njósnamynd sem fjallar þegar allt kemur til alls um mannlegt eðli.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?