Notendur samfélagssíðunnar Twitter elska Contraband og gefa kvikmynd Baltasars Kormáks virkilega góða dóma. Þetta kemur fram á vefsíðunni BoxOffice.com en þar er daglega tekin saman Twitter stuðull (e. Twitter index). Contraband er í þriðja sæti af mest umtöluðu myndunum á Twitter og er jákvæðnistuðullinn 15:1. Aðeins ein önnur mynd, myndin Safe House fær svo jákvæða dóma.
Þetta eru virkilega góðar fréttir fyrir aðstandendur myndarinnar og gefur þetta von um að myndin haldi áfram að raka inn peningum. Dagana 13. til 16. janúar halaði myndin inn rúmlega tuttugu og átta miljónum dala vestanhafs en það fer vel yfir kostnaðinn við gerð kvikmyndarinnar, sem kostaði um tuttugu og fimm milljónir dala. Myndin verður frumsýnd hérlendis á föstudag.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Meint kvenhatur í Cannes
Allur heimurinn verður rafmagnslaus
Francis Lawrence leikstýrir Catching Fire
Russell Crowe til landsins
Laxness í lifandi myndum
