ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Smábarn notar F-orðið

Modern Family fyrirgefst allt
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:00 › 17. janúar 2012

Framleiðendur Modern Family segjast ætla að brjóta blað í sögu sjónvarpsþátta með því að láta smábarnið Lily blóta í þættinum.
Framleiðandi þáttanna, Steve Levitan, segist ekki hafa áhyggjur af viðbrögðum við ragni barnsins þar sem þátturinn haldi sig vanalega innan marka siðferðis.

„Við ákváðum að kýla á þetta enda kannast flestir foreldrar við þær aðstæður þegar börn þeirra segja hluti sem þau ættu ekki að gera. Þátturinn okkar kemst upp með mjög margt af því að við setjum efnið fram á smekkvísan hátt. Við byggjum þetta ekki upp á kynlífi og ofbeldi. Tónninn í söguþræðinum er mjúkur og þess vegna fyrirgefa áhorfendur okkur meira. Ég efast þó ekki um að einhverjir þarna úti eigi eftir að reiðast,“ sagði Levitan á fréttamannafundi ABC-sjónvarpsstöðvarinnar.

Lily, sem er ættleidd dóttir samkynhneigða parsins Mitchell og Cameron, á að nota F-orðið fræga í þættinum Little Bo Bleep sem fer í loftið í þessari viku vestanhafs. Samkvæmt Levitan mun ragnið sem Lily, sem er leikin af fimm ára stúlku, Aubrey Anderson-Emmon, gefur frá sér að sjálfsögðu verða þurrkað út með hátíðni hljóðmerki að bandarískri hefð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?