Færeyski ljósmyndarinn Regin Weihe Dalsgaard sýnir myndir af grindhvaladrápi í Færeyjum á sýningu sinni 2 mínótur sem opnaði 14. janúar og stendur til og með 12. febrúar í Norræna húsinu. Myndirnar varpa óvenjulegu ljósi á viðfangsefnið.
Meginþema sýningarinnar er viðbrögð áhorfenda við grindhvaladrápunum en ekki drápin sjálf.
Grindhvaladráp eða grindhvalaveiðar eru ævaforn hefð sem enn lifir góðu lífi í Færeyjum. Grindhvaladrápið sjálft er þó ekki mikilvægasta myndefnið heldur þátttakendurnir því svipur þeirra sýnir allar þær miklu tilfinningar sem tengjast veiðunum. Myndirnar sýna Færeyinga sem taka sér hlé frá daglegu amstri til þess að taka þátt í drápinu.
Alþjóðlegir fjölmiðlar hafa sýnt myndunum mikinn áhuga og kynnt þær í efni sínu. Í sumar sem leið lét Discovery Channel gera heimildamynd um Færeyjar og þar átti Regin hlut að máli sem ljósmyndari.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Nemendasýning Ljósmyndaskólans
Tólf klukkustunda langur gjörningur í Þjóðleikhússins
Bætt við miðum á Listahátíð
Ólafur hefur hannað nýtt listaverk fyrir glerhjúp Hörpu
Steinar Bragi fer hörðum orðum um bókmennta- gagnrýni á Íslandi
