Listaverk listamannsins heimsfræga Santiago Sierra munu setja svip sinn á menningarlíf Íslendinga í lok janúar og munu nokkur þeirra vera gjörningar sem tengjast íslenskum veruleika og efnahagshruninu. Listamaðurinn hefur nú auglýst eftir bankastarfsmönnum með samviskubit vegna þessara verka.
Hafþór Yngvason, safn- og sýningarstjóri, segir heildarsafn heimildakvikmynda og -myndbanda Sierra verða sýnt í fyrsta sinn á heimsvísu á sýningunni. „Sýningin hér á landi er hans fyrsta yfirlitssýning,“ segir Hafþór. „Okkur fannst mikilvægt að kynna verk hans almennt hér á landi til að setja ný verk hans um íslenskt samfélag í samhengi. Það er vonandi að verk hans eigi hér sterkt erindi og skapi umræðu.“
Borgaði vændiskonum með heróíni
Verk Santiago þykja bæði róttæk og ögrandi og byggja á virku andófi. Hann hefur oft verið sakaður um að færa sér í nyt bágbornar aðstæður verkafólks og þeirra sem hafa beðið skarðan hlut frá borði í samfélaginu. „Tilgangur hans er ekki að hneyksla,“ segir Hafþór. „Verk hans fjalla um fólk sem hefur orðið undir í samfélaginu. Orðið leiksoppar aðstæðna. Hann hefur oft svarað þeirri gagnrýni að hann niðurlægi fólk í verkum sínum með því að benda á að það séu kringumstæðurnar sem séu fólkinu niðurlægjandi.“
Sierra hefur greitt vændiskonum með heróíni fyrir að fá að láta húðflúra línu á bakið á þeim þar sem þær sátu uppstilltar í beinni röð. Hann hefur fengið verkamenn til að bera þunga hluti fram og til baka í algjöru tilgangsleysi og aðra hefur hann lokað inni í pappakassa í kæfandi sumarhitum.
Sem fulltrúi Spánar á Feneyjatvíæringnum 2003, meinaði Sierra öllum nema löndum sínum aðgang að spænska skálanum. Þá hefur hann oftsinnis notað starfsfólk listasafna í gjörninga sína. Frægt er þegar hann benti á ójöfnuð í safninu sjálfu þegar hann bað starfsmenn eins safnsins að raða sér í röð eftir því hver staða þeirra var innan safnsins, frá lægstu stöðu til þeirrar hæstu. Þegar starfsmennirnir höfðu raðað sér upp voru þeir í litaröð. Þeir lægst settu voru dökkir og eftir því sem staða starfsmanns batnaði varð húðliturinn ljósari. Sá hæst setti hafði ljósasta húðlitinn. Þetta þótti áhrifamikið verk og verk hans hafa jafnan sterkt myndmál.
En hvað skyldi Santiago fjalla um hér á landi?
„Tvö verk Santiago tengjast íslenskum veruleika að einhverju leyti. Um efnahagshrunið, mótmælin og þær breytingar sem urðu og urðu ekki á okkar samfélagi,“ segir Hafþór.
Andóf víða um bæ
Dagskrá sýningarinnar er margháttuð. Dagana 16. til 19. janúar fer fram gjörningur víðsvegar um Reykjavík í tengslum við sýningu Sierra. Sá gjörningur verður tengdur íslenskum veruleika.
Þriðjudaginn 24. janúar verður sýnd myndin NO, Global Tour í Bíó Paradís og um miðjan febrúar verður fluttur gjörningurinn Destroyed World. Í lok sýningartímabilsins verður svo haldið málþing um róttækni og andóf í tengslum við sýninguna þar sem könnuð eru einkenni og markmið andófslistar sem og hugsanleg mörk andófs og listar.
Einnig verður hugað að andófi sem ákveðinni list, er byggir á færni og hugmyndaauðgi. Stjórnandi er Egill Arnarson heimspekingur.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Nemendasýning Ljósmyndaskólans
Tólf klukkustunda langur gjörningur í Þjóðleikhússins
Bætt við miðum á Listahátíð
Ólafur hefur hannað nýtt listaverk fyrir glerhjúp Hörpu
Steinar Bragi fer hörðum orðum um bókmennta- gagnrýni á Íslandi
