Stórmyndin Contraband, bandarísk endurgerð myndarinnar Reykjavík-Rotterdam í leikstjórn Baltasar Kormáks, hefur farið frábærlega af stað í kvikmyndahúsum vestanhafs en hún var frumsýnd á föstudaginn.
Myndin var sú langtekjuhæsta á föstudaginn en tekjur af miðasölu voru þá rétt tæplega níu milljónir dollara samkvæmt vefsíðunni boxoffice.com eða því sem nemur ríflega milljarði króna.
Sama síða reiknar með því að Contraband hali inn 24 milljónum dollara þessa fyrstu helgi eða því sem samsvarar þremur milljörðum króna. Þá er reiknað með að fyrstu fjórir dagarnir skili henni 29 milljónum dollara í tekjur eða 3,6 milljörðum króna.
Standist útreikningar vefsíðunnar þýðir það að á fyrstu helgi í sýningu er Contraband búin að vinna upp helming kostnaðarins við gerð myndarinnar en hann er talinn hafa verið um fimmtíu milljónir dollara.
Blendnar viðtökur
Contraband hefur fengið misjafnar viðtökur en hún skorar 51 af 100 á Metacritic.com sem tekur meðaltalið af 33 dómum sem nú hafa birst um myndina.
Það eru þó risar á markaðnum sem lofa myndina og gefur skemmtanaritið Entertainment Weekly myndinni einkunnina B og mælir með því að allir sjái hana. Það samsvarar 75 af 100 á Metacritic.
Kvikmyndavefsíðan Movieline gefur Contraband 7 af 10 og það sama gerir blaðið Wall Street Journal og tímaritið Time.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Meint kvenhatur í Cannes
Allur heimurinn verður rafmagnslaus
Francis Lawrence leikstýrir Catching Fire
Russell Crowe til landsins
Laxness í lifandi myndum
