ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Ebert kann ekki að meta Contraband

Gagnrýnandinn virti splæsir í tvær stjörnur
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:53 › 13. janúar 2012
Baltasar stendur í stórræðum á erlendri grund með stórmyndinni Contraband.

Baltasar stendur í stórræðum á erlendri grund með stórmyndinni Contraband. Mynd: DV

Nýjasta kvikmynd leikstjórans Baltasars Kormáks, Contraband, verður frumsýnd í Bandaríkjunum í dag, föstudag.

Myndin er endurgerð af íslensku kvikmyndinni Reykjavík–Rotterdam frá árinu 2009, en Baltasar lék einmitt eitt af aðalhlutverkunum í þeirri mynd. Myndina prýða stórstjörnurnar Kate Beckinsale og Mark Wahlberg. Einhverjir kvikmyndagagnrýnendur fengu að sjá myndina fyrir frumsýningu, og gefur Rober Ebert, einn virtasti kvikmyndagagnrýnandi Bandaríkjanna, Contraband, þó ekki mjög góða dóma. Myndin fær aðeins tvær stjörnur hjá honum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?